Þurftu að gera eitthvað róttækt

Auglýsing kvennalandsliðsins.

Auglýsing kvennalandsliðsins.
mbl.is

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu notaði heldur óhefðbundna leið til að vekja athygli á landsleik á móti Ítölum sem fram fer í Laugardalnum klukkan 11 í dag, en á heilsíðuauglýsingu sem birtist í Morgunblaðinu í gær var mynd af stelpunum í liðinu í bikiníum undir orðinu "stelpuslagur".

Valgerður Bjarnadóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir auglýsinguna með kynferðislegum undirtóni og segir sorglegt að stúlkurnar hafi látið undan kröfum markaðsaflanna, að ekkert sé spennandi nema í því sé ofbeldi og kynlíf, þar sem kvennaknattspyrna snúist um allt annað.

Hugmyndin að auglýsingunni kviknaði hjá liðinu sjálfu og söfnuðu þær styrkjum til að fjármagna auglýsinguna. Ásthildur Helgadóttir fyrirliði segir að þeim hafi fundist nauðsynlegt að vekja athygli á leikjum liðsins og liðinu sjálfu. "Það hefur farið svolítið lítið fyrir okkar leikjum og ekki margir mætt á völlinn. Þannig að þetta var tilraun til að vekja athygli á okkur og það tókst greinlega," segir Ásthildur.

Hún segir að liðið hafi fengið mjög góð viðbrögð við auglýsingunni. Hún segir að allar í liðinu hafi viljað fara þessa leið en á fundi fyrir síðasta leik var rætt hvað liðið gæti gert til að auka áhuga á kvennaknattspyrnu. "Við erum allar tilbúnar að leggja mikið á okkur til að standa okkur vel og breyta því hve lítill áhugi er á kvennaboltanum." Ásthildur segir að reynt hafi verið að stilla liðinu þannig upp að öllum hafi liðið vel, einnig hafi þær getað valið sér bikiníin sjálfar.

Orðið "stelpuslagur" gefur kynferðislegan undirtón

Valgerður segir að henni finnist auglýsingin sorgleg. "Mér finnst þessar stelpur, sem ég ber heilmikla virðingu fyrir, vera að gefa eftir fyrir markaðsöflunum og segja að ekkert sé neins virði nema það sé ofbeldi í því og einhver kynlífssala," segir Valgerður.

"Þegar orðið "stelpuslagur" og íþróttastelpur í bikiníi, sem tengist þeirra íþrótt ekki á neinn hátt, fer saman í auglýsingu er leðjuslagur það fyrsta sem kemur upp í hugann, ekki bara hjá mér heldur fleirum, stelpur að slást, æsandi og spennandi. Mér finnst þetta sorglegt, ég vildi að þær gætu bara staðið fyrir það sem þær eru að gera með fullri virðingu og fengið athygli út á það, krefjast þess að fá athygli út á það, en ekki það sem heimurinn veitir sjálfkrafa athygli."

Hún telur að með því að taka orðið "stelpuslagur" út hefði mátt breyta miklu.

Ekki stelpur með stóran rass og læri

Ásthildur segir að starfsmaður auglýsingastofu hafi átt hugmyndina að því að nota orðið "stelpuslagur". "Það var ágætishugmynd og vakti eiginlega meiri athygli á þessu," segir hún. Aðspurð segir Ásthildur að það geti verið að fólk túlki auglýsinguna með kynferðislegum undirtóni. "Ég held að það sé bara allt í lagi að vekja þetta umtal, það var eiginlega það sem við vorum að sækjast eftir."

Ásthildur segir einnig að þær hafi viljað breyta viðhorfinu til kvennaknattspyrnu. "Það hefur oft verið í umræðunni að stelpur verði bara feitar, með feit læri og stóran rass af að vera í fótbolta. Við vildum kannski líka sýna að við erum í góðu formi og æfum vel."

Valgerður segir auglýsinguna ekki gefa rétt skilaboð. "Þær eru ekki kyntákn á vellinum, þar eru þær konur sem eru að brjóta múra dálítið, að krefjast þess að fá að stunda sín áhugamál sem kunna að vera dálítið óhefðbundin enn þá. Það tekur tíma að vinna sér virðingu þegar við erum að fara inn á óhefðbundin svið," segir hún.

Ástralska kvennalandsliðið í knattspyrnu sat fyrir á dagatali fyrir Ólympíuleikana í Sydney og voru þær þar kviknaktar. Valgerður segir að Ástralir séu mjög aftarlega hvað varðar jafnréttismál. Hún segir að hún hefði frekar viljað að stelpurnar hefðu verið í sínum búningum, þótt þær hefðu ekki fengið jafnmikla athygli út á það, og að undir hefði t.d. staðið "Stoltar stelpur" eða "Flottar stelpur". "Það hefði verið auglýsing út á hvað þær standa fyrir."

Ásthildur segir aftur á móti að stúlkurnar í liðinu hafi oft verið í viðtölum þar sem þær eru í keppnisgallanum og á myndum. "En það er bara ekki nóg til að það sé tekið eftir því og geta okkar sé viðurkennd," segir hún. "Það virðist vera raunin að það þurfi að gera eitthvað róttækt, sérstaklega við stelpurnar."

Þarf fleiri á völlinn

Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir að honum finnist auglýsingin vera mjög góð. Hann segist ekki sjá neitt athugavert við hana, honum finnist ekkert dónalegt við stúlkur á sundbol, það sé fyrst og fremst verið að vekja athygli á því hvað er að gerast í kvennaknattspyrnunni.

"Mér finnst dónaskapur við stúlkurnar hvað mæta fáir á völlinn, þær hafa staðið sig mjög vel og verið með mjög góðan árangur og eiga það hreinlega skilið að fólk styðji við bakið á þeim. Stundum er verið að fjalla um það í ræðu og riti að það sé ekki nóg gert í kvennaknattspyrnunni, það ágæta fólk sem heldur því fram á að minnsta kosti að sýna þá stórmennsku að mæta á völlinn."

Ásthildur segir að mest hafi liðið náð um 500 manns á völlinn, en algengt er að um 5.000 mæti á landsleiki í karlaboltanum. Leikurinn í dag, sem er annar leikur Íslendinga í undankeppni í heimsmeistarakeppni kvenna, hefst klukkan 11. "Það er kannski ekki ákjósanlegasti tíminn til að spila, það náðist seint að semja um leikdag við Ítalina og búið var að setja á umferð í úrvalsdeild karla. Þetta er niðurstaðan og við tökum því bara eins og það er, við hefðum viljað spila leikinn klukkan 14 eða 16, það er líka betra upp á áhorfendur."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert