Enn hefur ekki náðst í 5 Íslendinga í Lundúnum

Enn hefur ekki náðst í 5 Íslendinga í Lundúnum, samkvæmt Heiðrúnu Pálsdóttur, fulltrúa í utanríkisráðuneytinu. Unnið verður að því að hafa upp á þeim sem upp á vantar eitthvað fram eftir kvöldi. Símavakt verður í utanríkisráðuneytinu til miðnættis í kvöld, en þangað getur fólk hringt til þess að láta vita af eða spyrjast fyrir um Íslendinga í Lundúnum þar sem hryðjuverkaárásir voru gerðar í lestum og strætisvagni í morgun. Símanúmerið er 545-9900.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert