Mikið áfall fyrir Framsóknarflokkinn

Stjórn Alfreðs, félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður, segir í ályktun, að það sé gríðarlegt áfall fyrir Framsóknarflokkinn að Björn Ingi Hrafnsson, leiðtogi flokksins í Reykjavík, hafi ákveðið að hætta í stjórnmálum.

Í ályktun frá félaginu segir, að mikill uppgangur hafi verið í félagsstarfinu og friður skapast undir öruggri forystu Björns Inga í borginni. Mörg góð verk liggja eftir hann, sem hafi lagt allan sinn metnað í að vinna vel fyrir flokkinn okkar sem og borgarbúa alla.

„Það er með ólíkindum að einstaklingar eins og Guðjón Ólafur Jónsson sem og ónefndur fyrrverandi félagsmaður og borgarfulltrúi Framsóknarflokksins geti lagst svo lágt til að skemma vísvitandi fyrir flokknum og flokksfólki öllu. Fólk sem er algjörlega rúið trausti og stuðningi innan flokksins, fólk sem hefur ítrekað reynt að beita svikum og óheilindum til að ná sínu framgengt. Stjórn Alfreðs fordæmir svona vinnubrögð afdráttarlaust og afgerandi," segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert