Kristján Már hlaut Blaðamannaverðlaun ársins 2007

Verðlaunahafarnir.
Verðlaunahafarnir. Árvakur/Andri Karl

Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, hlaut Blaðamannaverðlaun ársins 2007, fyrir fréttir úr hversdagslífi á landsbyggðinni sem vörpuðu ljósi á þjóðfélagsbreytingar. Verðlaunin voru veitt í Þingholti á Hótel Holti nú síðdegis.

Verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins 2007  fengu þeir Jóhannes Kr. Kristjánsson og Kristinn Hrafnsson, Stöð 2, fyrir umfjöllun í Kompási.

Sameiginlega fengu ritstjórn DV og Sigmar Guðmundsson og Þóra Tómasdóttir verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins, vegna umfjöllunar þeirra um Breiðavíkurmálið. Þetta er í fyrsta sinn í fimm ára sögu verðlaunanna að aðilar af tveimur ritstjórnum deila með sér verðlaunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert