Verkefni REI í lausu lofti

mbl.is/Guðmundur Rúnar

Uppsagnir fjögurra lykilmanna hjá Reykjavík Energy Invest, REI, um mánaðamótin koma þeim sem til þekkja ekki á óvart. Einn viðmælandi segir að þeir hafi í raun dregið allt of lengi að segja upp. Félagið hafi byrjað vel en stöðug ágjöf hafi verið síðan í október og enginn vinnufriður.

Orkuveita Reykjavíkur og þar með REI er í eigu Reykjavíkurborgar, sem á 93,5%, Akraneskaupstaðar með 5,5% og Borgarbyggðar, sem á 1%. Ljóst er að framtíð REI og verkefna félagsins er í höndum eigenda fyrirtækisins, stjórnmálamannanna, sem stjórna því fyrir hönd eigenda.

Undirbúningur verkefna

Starfsmennirnir eru orðnir þreyttir á samstöðuleysi þeirra um framtíð verkefna REI og segja að erfitt sé að vinna að framgangi mála. Samskiptin við þá hafi nánast verið engin síðan í haust og einn vísar í viðtal við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, nýjan oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni, í Morgunblaðinu fyrir skömmu, þar sem hún sagði að stjórnmálamenn ættu ekki að vera uppteknir við það að velta fyrir sér fjárfestingartækifærum í öðrum löndum. „Þetta fer auðvitað óþægilega í starfsfólkið sem er að reyna að vinna vinnuna sína eins vel og það getur,“ segir hann.

REI var stofnað fyrir rúmu ári um útrásarverkefni OR erlendis. Starfið hefur fyrst og fremst falist í því að safna og undirbúa jarðveginn, koma upp samböndum og tengslaneti. Fyrst þarf að fá rannsóknarleyfi, sem getur tekið eitt ár eða lengri tíma, og síðan vinnsluleyfi, en ekki er farið út í vinnslu nema fyrir liggi vitneskja um auðlind og orkusölusamningur.

Eina fyrirliggjandi rannsóknarleyfið er í Djíbútí í Afríku. Gunnar Örn Gunnarsson og Þorleifur Finnsson hafa borið hitann og þungann af því. Einnig er í bígerð að halda áfram niður eftir Austur-Afríkuhryggnum.

Hverjir eru eftir?

Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, og Guðmundur F. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri verkefna í Eyjaálfu og Asíu, auk þriggja sumarstarfsmanna. Enn fremur starfa nokkrir erlendir sérfræðingar í Indónesíu og fyrir félag sem REI og Geysir Green Energy, GGE, eiga 50% í á Filippseyjum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert