Enn ekki flogið til Eyja

Ekki hefur verið hægt að fljúga til Vestmannaeyja í morgun til að sækja þjóðhátíðargesti en þoka er yfir flugvellinum þar. Flugvélar Flugfélags Íslands bíða á Reykjavíkurflugvelli en athugað verður rúmlega 12    hvort létt hafi nægilega til.

Í Vestmannaeyjum er súld og hægviðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert