Sjómenn enn andvígir ESB-aðild

Sævar Gunnarsson.
Sævar Gunnarsson.

„Við höfum ekki skipt um skoðun. Við erum algerlega andsnúnir því að gengið verði inn í Evrópusambandið,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands (SSÍ), um afstöðu sambandsins gagnvart aðild að ESB.

Á nýafstöðnum ársfundi ASÍ var samþykkt ályktun um aðgerðir til að endurheimta fjármálastöðugleika en þar eru stjórnvöld hvött til að fara í aðildarviðræður við ESB.

Tillagan var lögð fyrir þingið af landssamböndum ASÍ en Sjómannasambandið er eitt þeirra. Af um 280 ársfundarfulltrúum sem greiddu atkvæði um ályktunina voru sex á móti. 

Sævar sat hjá við atkvæðagreiðslu um ályktunina á ársfundinum vegna málsgreinarinnar um að sækja beri um aðild að ESB. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert