Keflavík meðal bestu flugstöðva í heimi

mbl.is/ÞÖK

Þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er framúrskarandi að mati alþjóðasamtaka flugvallarekenda, Airports Council International.

Í gæðakönnun samtakanna sem gerð er meðal flugfarþega á helstu flugvöllum var flugstöðin valin í fyrsta sæti evrópskra flugstöðva á fjórða ársfjórðungi síðasta árs fyrir kurteisi og hjálpfýsi starfsfólks, þægindi við að skipta um flug, aðgengi að verslunum og bankaþjónustu, hreinleika, kjarakaup í verslunum (value for money) og biðtíma eftir farangri.

Stöðin hlaut annað sæti fyrir notalegt andrúmsloft og þriðja sæti fyrir öryggistilfinningu farþega. Jafnframt var Flugstöð Leifs Eiríkssonar valin þriðja besta flugstöð í Evrópu í heildaránægju farþega og áttunda besta flugstöð í heimi í flokki flugstöðva með færri en 5 milljónir farþega.
 
Könnun ACI nær til 127 flugvalla um allan heim. Farþegar eru fengnir til að svara spurningum um tiltekna þjónustuþætti og birtast niðurstöður ársfjórðungslega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert