Björn áfram lækningaforstjóri

Björn Zoëga
Björn Zoëga

Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala (LSH), hefur ráðið Björn Zoëga til áframhaldandi starfa sem lækningaforstjóri stofnunarinnar. Staða lækningaforstjóra Landspítala er ein æðsta staða í lækningum á Íslandi.

Aðrir umsækjendur voru Friðbjörn Sigurðsson, Kristján Sigurðsson og Vilhelmína Haraldsdóttir.   Ráðið var til starfsins á grundvelli auglýsingar, viðtals og niðurstöðu nefndar landlæknis sem mat alla umsækjendur hæfa til starfsins. Í niðurstöðu Huldu segir að þyngst vegi í ráðningu Björns reynsla hans, umfram aðra umsækjendur, í ákvarðanatöku á efsta stigi stjórnunar á Landspítala á umbreytingartímum.

Björn er bæklunarskurðlæknir og lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands árið 1990, sérfræðinámi árið 1996 og doktorsprófi frá háskólanum í Gautaborg og Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu árið 1998. Hann lauk lauk stjórnunarnámi á vegum  háskólans í Gautaborg og Sahlgrenska háskólasjúkrahússins árið 1999. Björn sinnti  síðan stjórnun á sviði bæklunarskurðlækninga 1999-2002 í Gautaborg.  Hann var ráðinn yfirlæknir á LSH í lok árs 2002 og var síðan valinn sviðstjóri skurðlækningasviðs LSH árið 2005.

Frá september 2007 hefur Björn leyst af sem framkvæmdastjóri lækninga og frá 1.apríl til loks október 2008 sem forstjóri LSH. Björn hefur birt fjölda greina í ritrýndum erlendum tímaritum og leiðbeint nemendum í doktorsnámi. Hann gegnir ólaunaðri kennslustöðu við háskólann í Gautaborg og Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið og tekur þátt í alþjóðlegum vísindarannsóknum í samvinnu við ýmsa rannsóknarhópa. Helsta rannsóknarefni Björns síðustu árin er meðferð hryggjarsjúkdóma, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert