Óska eftir stuðningi borgarinnar

Sverrir Vilhelmsson

Hvalaskoðunarfyrirtækin í Reykjavík, Elding/Hvalaskoðun Reykjavík ehf og Hvalalíf ehf , óska eftir eindreginni yfirlýsingu um stuðning við fyrirtækin frá Reykjavíkurborg. Er þetta gert í ljósi áróðri nágrannasveitarfélaganna fyrir hvalveiðum og hrefnukjötvinnslu á Akranesi.

„Í ljósi þess að undanfarið hafa nágrannasveitarfélög Reykjavíkur haldið uppi gengdarlausum áróðri fyrir hvalveiðum og hrefnukjötvinnslu á Akranesi og gefið út yfirlýsingar þar að lútandi óska hvalaskoðunarfyrirtækin í Reykjavík, Elding/Hvalaskoðun Reykjavík ehf og Hvalalíf ehf , eftir eindreginni yfirlýsingu um stuðning við fyrirtækin.

Hrefnum hefur fækkað mikið frá því að vísindaveiðar hófust árið 2003 en þá voru þær taldar um 43.633. Samkvæmt nýjustu talningum Hafrannsóknarstofnunar eru þær einungis 10.680. Vísbendingar eru um að þær séu jafnvel enn færri, eða nær 6.000. Við sem höfum unnið í greininni síðasta áratug höfum orðið áþreifanlega vör við fækkun dýranna í Faxaflóa.

Vísindalegar rannsóknir sem Elding hefur látið vinna síðastliðin tvö ár benda til að ekki séu ýkja mörg dýr sem koma hér við heldur sé verið að skoða sömu dýrin ár eftir ár. Starfsfólk áætlar að fjöldi hrefna geti verið frá nokkrum dýrum upp í hundrað dýr en misjafnt er hvar í Faxaflóa þau halda sig. Við höfum þurft að þola það að hvalveiðimenn séu á veiðum á sömu slóðum og verið er að fara með ferðamenn í hvalaskoðun. Þannig hafa loforð um að veiðarnar færu fram á öðrum svæðum ítrekað verið svikin. 

Áform um stórfelldar veiðar, með útgefnum kvóta á 100 hrefnur á ári næstu fimm árin, geta haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir gæði hvalaskoðunarferða. Rekstrargrundvöllur okkar er þar með í hættu eftir áralangt starf í uppbyggingu í greininni, tugmilljóna króna markaðssetning á hverju ári frá upphafi hefur þar með verið kastað á glæ.
Í Reykjavík hefur ferðamönnum í hvalaskoðun fjölgað mikið. Þegar hvalaskoðun hófst árið 1996 fóru nokkur hundruð manns í ferðir á Faxaflóann en á síðasta ári var fjöldi farþega í hvalaskoðun frá Reykjavík kominn í um 60.000. Miklar líkur eru á enn meiri fjölgun í ár.

Ef svo ótrúlega vill til að ráðamenn leyfi hrefnuveiðar þarf Reykjavíkurborg að standa við bakið á hvalaskoðunarfyrirtækjum við Reykjavíkurhöfn, að Faxaflóinn verði griðland þar sem veiðar verða ekki leyfðar. Ef svo illa fer að verði af hvalveiðum hlýtur að vera hægt að veiða á öðrum svæðum en í  Faxaflóanum.  Að stjórnvöld skuli íhuga hvalveiðar í óþökk okkar helstu viðskiptalanda er nógu mikil ógn.  Í ljósi  efnahagshrunsins  í landinu megum við varla við fleiri hryðjuverkastimplum og ekki veitir af að standa vörð um þau fyrirtæki í landinu sem þegar eru að afla gjaldeyristekna og skapa störf," að því er segir í tilkynningu .

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert