Í þriggja vikna gæsluvarðhald

Einn mannanna þriggja leiddur út úr Héraðsdómi Reykjavíkur.
Einn mannanna þriggja leiddur út úr Héraðsdómi Reykjavíkur. mbl.is/Golli

Þrír karlmenn um þrítugt, sem handteknir voru í nótt, grunaðir um stórfellt fíikniefnasmygl, voru samkvæmt upplýsingum mbl.is nú síðdegis úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 11. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, eða í þrjár vikur.

Tveir mannanna voru handteknir í nágrenni við Djúpavog en lögreglan stöðvaði einn þremenninganna í nótt á hringveginum, rétt við afleggjarann að Höfn. Hann var á suðurleið með fíkniefnin í jeppa, yfir 100 kg samkvæmt heimildum mbl.is.

Mennirnir komu fyrr í vikunni með slönguhraðbát til Djúpavogs. Mennirnir munu hafa sagt fólki á Djúpavogi að þeir hafi keypt bátinn af banka nýverið. Þeir sögðust vera áhugamenn um köfun og ætla að stunda köfun í nágrenninu. Aldrei sáust þó köfunarbúningar nálægt bátnum en athygli vakti að um borð voru nokkrir stórir bensínbrúsar líkt og löng sigling væri fyrir höndum.

Fíkniefnin munu hafa verið flutt til landsins með skútu sem kom upp að landinu í gær. Þremenningarnir fóru til móts við hana á hraðbátnum og fluttu fíkniefnin í land. 

Varðskip með sérsveitarmenn um borð siglir nú að skútunni, sem er á siglingu fyrir austan land. 

Lögregla hefur lagt hald á slöngubátinn, sem er knúinn aflmikilli …
Lögregla hefur lagt hald á slöngubátinn, sem er knúinn aflmikilli utanborðsvél og því hraðskreiður.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert