Ráðherra brött eftir byltuna

Svandís hlaut höfuðhögg og var flutt á slysadeild.
Svandís hlaut höfuðhögg og var flutt á slysadeild. mbl.is/Heiðar

„Hún er bara nokkuð brött og er talið að hún hafi sloppið nokkuð vel frá þessu," sagði ritari Svandísar Svavarsdóttur er hún var innt eftir líðan umhverfisráðherra sem féll af reiðhjóli sínu fyrir utan ráðuneytið fyrr í dag.

„Hún hlaut einhverjar kúlur á höfuðið en er að jafna sig," sagði Þórunn Elfa Sæmundsdóttir ritari ráðherra í samtali við mbl.is. Hún sagði jafnframt að ráðherrann væri heima að jafna sig eftir byltuna en hún var flutt í sjúkrabíl á slysadeild til athugunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert