Boða til útifundar á laugardag

mbl.is/hag

Hagsmunasamtök heimilanna boða ásamt samtökunum Nýtt Ísland til útifundar á Austurvelli á laugardag kl. 15 þar sem krafist verður réttlætis og sanngirni í lánakjörum. Segja samtökin, að tilefnið sé augljós tregða stjórnvalda til að bregðast af alvöru við forsendubresti lánasamninga.

Nú stendur yfir annað greiðsluverkfall Hagsmunasamtaka heimilanna. Segja samtökin, að áætlað sé að um 30 þúsund heimili taki þátt í verkfallinu þar sem búi yfir 75 þúsund manns. Þetta sé langt yfir upphaflegum væntingum en í samræmi við þærkannanir sem gerðar hafi verið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert