Ráðin dagskrárstjóri RÚV

Erna Ósk Kettler hefur verið ráðin dagskrárstjóri Sjónvarpsins frá næstu mánaðamótum, að því er kemur fram á vef Ríkisútvarpsins. Erna hefur starfað sem fulltrúi í innkaupadeild Sjónvarpsins. Berglind G. Bergþórsdóttir, mannauðsráðgjafi, hefur verið ráðin í nýja stöðu mannauðsstjóra RÚV.

Þrjátíu og sjö umsóknir bárust um starf dagskrárstjóra Sjónvarpsins og 40 um starf mannauðsstjóra Ríkisútvarpsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert