Hjólastígurinn á Hverfisgötu hverfur

Hjólastígurinn var lagður í sumar.
Hjólastígurinn var lagður í sumar. Eggert Jóhannesson

Hjólreiðastíg á Hverfisgötunni í Reykjavík verður aftur breytt í bílastæði um næstu mánaðamót. Þegar ákveðið var að gera hjólastíg á götunni var jafnframt ákveðið að endurskoða ákvörðunina 1. október.

Gunnar Hersveinn, upplýsingafulltrúi umhverfissviðs borgarinnar, segir að reynslan af þessari tilraun verði metin í framhaldinu. Rætt verði við hagsmunaaðila og gögnum safnað. „Þessi stígur verður ekki áfram í þessu formi, en ráðstafanir fyrir hjólandi verða gerðar. Þetta er hluti af hjólaleiðakerfi sem borgin ætlar að leggja á næstu árum.“

Gunnar segir að kostnaði við þetta verkefni hafi verið haldið í algjöru lágmark. Kostnaðurinn hafi aðallega falist í málun og umsjón með verkefninu. Hjólavísar, sem hafi verið settir í götuna séu hluti af kostnaði og verði þarna áfram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert