Fær ekki bætur að fullu vegna vanskila atvinnurekanda

Höfuðstöðvar Sjóvár.
Höfuðstöðvar Sjóvár.

Maður sem lenti í vinnuslysi fær aðeins um þriðjung þeirra bóta sem honum voru ætlaðar. Tryggingarfyrirtækið tekur afganginn og segir ástæðuna fyrir því þá að fyrirtækið sem maðurinn vann hjá hafi verið í vanskilum við tryggingafyrirtækið. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Í apríl árið 2009 lenti Jóhann Ingi Ármannsson í vinnuslysi þegar hann var við störf hjá BM-Vallá. Við slysið missti Jóhann framan af baugfingri hægri handar auk þess sem hann hefur takmarkað grip eftir slysið og stöðug eymsli, sérstaklega í kulda.

BM-Vallá var með starfsmenn sína tryggða hjá Sjóvá og var metið að Jóhann ætti að fá greiddar tvær milljónir og sjöhundruð þúsund í bætur vegna slyssins.

En þessir peningar skiluðu sér ekki allir til Jóhanns.

„Tryggingarnar tóku 14 hundruð þúsund krónur af bótunum upp í vangoldin gjöld hjá Sjóvá. Það lítur út fyrir mér að BM-Vallá hafi ekki staðið við sínar greiðslur til Sjóvá," segir Jóhann Ingi, í viðtali við Stöð 2.

Þau svör fengust hjá Sjóvá að heimild væri fyrir vátryggingafélög að taka af bótum fólks vegna vangoldinna iðgjalda þess fyrirtækis sem það starfar hjá. Í samtali Stöðvar 2 við lögmann Sjóvár kom þó fram að þessi heimild væri sjaldan beitt enda væri nokkuð kaldranalegt að ganga á bætur fólks vegna vanskila þess fyrirtækis sem það vann fyrir. Ekki væri útséð með að Jóhann þyrfti að sitja uppi með allan skaðann þar sem hann á forgangskröfu í þrotabú BM Vallár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert