Reiknað er með að Fossá, nýtt skip Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, geti tvöfaldað öflunargetu verksmiðjunnar.
Slippurinn á Akureyri er að ljúka breytingum á skipinu og verður það afhent eftir reynslusiglingar í lok mánaðarins.
Í umfjöllun um þörungavinnsluna í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að unnið sé að ýmsum breytingum í verksmiðjunni til að auka afköst, en fyrirtækið annar ekki vaxandi eftirspurn. Atli Georg Árnason, framkvæmdastjóri, vonast til að framleiðsla fyrirtækisins tvöfaldist á næstu árum.