Mótorhjólaárekstur á Suðurlandsvegi

Vélhjólaslys átti sér stað við Litlu Kaffistofuna í dag þegar …
Vélhjólaslys átti sér stað við Litlu Kaffistofuna í dag þegar tveir ökumenn áttu í hraðakeppni sín á milli. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Bifhjólaslys átti sér stað hjá Litlu Kaffistofunni við Suðurlandsveg í dag. Um var að ræða ökumenn tveggja vélhjóla sem báðir voru fluttir á slysadeild, en ekki var um alvarleg meiðsl að ræða.

Mikill erill hefur verið í sjúkraflutningum hjá slökkviliði um land allt í dag, en alls 27 útköll hafa borist það sem af er degi. Einnig hefur verið annasamt hjá lögreglunni á Selfossi, en alls hafa 10 ökumenn verið teknir fyrir hraðaakstur. Að sögn lögreglu var um að ræða ofsaakstur á bilinu 115-140 kílómetra hraða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert