Róbert til liðs við Bjarta framtíð

Róberg Marshall og fleiri þingmenn á Alþingi.
Róberg Marshall og fleiri þingmenn á Alþingi. mbl.is/Ernir

Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að hann hafi ákveðið að segja skilið við Samfylkinguna og ganga til liðs við framboð Bjartrar framtíðar í komandi kosningum. Róbert segist styðja ríkisstjórnina fram að kosningum.

Yfirlýsing Róberts er svohljóðandi.

„Ég hef ákveðið að segja skilið við Samfylkinguna og ganga til liðs við framboð Bjartrar framtíðar í komandi kosningum. Sú ákvörðun byggist á þeirri sannfæringu minni að rjúfa þurfi þá átakahefð sem fest hefur rætur í íslenskum stjórnmálum. Átök innan og á milli núverandi stjórnmálaflokka á yfirstandandi kjörtímabili og vantraust á þeim afhjúpar veikleika íslenska flokkakerfisins og hversu illa það  þjónar samfélagi okkar. Það er kominn tími til að breyta því og ég vil leggja mitt af mörkum til að svo megi verða. 

Ég tel að fjöldi fólks bíði eftir stjórnmálaafli sem skilgreini sig hvorki til hægri né vinstri en sé öfgalaus vettvangur sátta og samtals í stað rifrildis og gífuryrða. Björt framtíð er slíkt afl. Hún er umhverfisvæn og leggur áherslu á að ljúka samningum við Evrópusambandið svo almenningur geti tekið afstöðu til inngöngu á upplýstum grunni.  Björt framtíð er brúarsmiður og sáttasemjari sem mun beita sér fyrir samstarfi stjórnar og stjórnarandstöðu fremur en átökum og hefðbundnu karpi. Við þurfum breytt vinnubrögð til að eiga Bjarta framtíð. Sú málefnavinna sem m.a. birtist á heimasíðu Bjartrar framtíðar og sú nauðsynlega hugarfarsbreyting sem hún boðar er mér mjög að skapi og ég vil taka þátt í þeirri vinnu.

Ég var kjörinn á þing fyrir Samfylkinguna á þessu kjörtímabili og styð í samræmi við það ríkisstjórnina fram að kosningum. Ég á von á því að samstarf mitt við hana haldist óbreytt frá því sem verið hefur. Brotthvarf mitt byggist fyrst og fremst á þeirri löngun minni til að nálgast stjórnmál næsta kjörtímabils með öðrum hætti. Þannig tel ég að ég nýti stutta þingreynslu mína sem best fyrir land og þjóð.  Ég óska félögum mínum og vinum í Samfylkingunni gæfu og áframhaldandi velgengni í störfum sínum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert