Ólafur sendi heillaóskir til Obama

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Árni Sæberg

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun forseta Bandaríkjanna Barack Obama heillaóskir frá sér, Dorrit og íslensku þjóðinni í tilefni af sigri hans í forsetakosningunum.

Í kveðjunni áréttaði forseti Íslands að vinátta og samstarf Íslendinga og Bandaríkjamanna eigi sér djúpar rætur og hvetur til aukinnar samvinnu á komandi árum, einkum í málefnum Norðurslóða og um nýtingu hreinnar orku.

Bráðnun íss og jökla í okkar heimshluta og öfgafull veðrabrigði minni okkur á að brýnt sé að grípa til aðgerða. Einungis gerbreyttur orkubúskapur, sem byggður er á nýtingu hreinnar og endurnýjanlegrar orku, geti komið í veg fyrir að loftslagshamfarir hrjái jarðarbúa í vaxandi mæli. Bandaríkin muni á nýju kjörtímabili Obama taka við formennsku í Norðurskautsráðinu. Innan vébanda þess og með samstarfi við aðrar þjóðir þurfi að efla rannsóknir og þekkingu og leggja grundvöll að varanlegum lausnum.

Víðtæk þekking og reynsla Íslendinga í nýtingu hreinnar orku geti í þessum efnum verið mikilvægt framlag enda hafi á undanförnum árum verið unnið að margvíslegum samstarfsverkefnum þjóða á því sviði.

Forseti Íslands hvatti að lokum til þess að komandi kjörtímabil verði nýtt til að efla enn frekar samvinnu og tengsl þjóðanna í þágu þessara verkefna og mætti í þeim efnum byggja á traustu sambandi íslenskra og bandarískra stjórnvalda, háskóla, vísindastofnana og víðskiptalífs.

Þá óskuðu forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff Barack Obama, Michelle konu hans og dætrum þeirra allra heilla, gæfu og gleði á komandi tíð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert