Banaslys á Akrafjallsvegi

Banaslys varð á Akrafjallsvegi skammt norðan Hvalfjarðarganga í nótt. Jeppabifreið, sem ekið var til austurs, hafnaði framan á fólksbifreið sem kom úr gagnstæðri átt með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbifreiðarinnar lést.

Ökumaður jeppans var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús. Hann er grunaður um ölvun við akstur að sögn lögreglunnar á Akranesi. Slysið varð um kl. 02:30 í nótt.

Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert