Sprengja í Kolgrafafirði á morgun

Frá fundi með heimamönnum í Kolgrafarfirði eftir hádegi í dag.
Frá fundi með heimamönnum í Kolgrafarfirði eftir hádegi í dag. Mbl.is/Alfons

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur tekið yfir samhæfingu aðgerða vegna síldarinnar sem nú er í Kolgrafafirði. Ákveðið hefur verið að ráðast í fælingaraðgerðir með djúpsprengjum í firðinum í því skyni að hrekja síldina sem þar er nú út úr firðinum.

Landhelgisgæslan mun sjá um framkvæmd þeirra aðgerða, sem gert er ráð fyrir að fari fram á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Aðgerðirnar voru ræddar í samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í morgun á fundi með fulltrúum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, Hafrannsóknarstofnunar, Umhverfisstofnunar, Vegagerðarinnar, Landhelgisgæslunnar, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sýslumanns Snæfellinga, Stykkishólmi. Þá voru aðgerðirnar kynntar og ræddar á fundi með heimamönnum í Kolgrafafirði nú í eftirmiðdag.

Varðskipið tók tekur þátt í aðgerðunum

Smölun síldar með djúpsprengjum er þekkt aðferð sem áður var notuð með góðum árangri við nótaveiðar en er nú víðast hvar bönnuð sem veiðiaðferð. Eru því nokkrar vonir bundnar við að hægt sé að hrekja síldina út úr firðinum með þessum hætti.

Varðskipið Þór mun í dag leggja af stað áleiðis til Kolgrafafjarðar vegna aðgerðanna og munu bátar á vegum Landhelgisgæslunnar koma djúpsprengjunum fyrir í firðinum á morgun.

Vegna aðgerðanna verður Kolgrafafjörður lokaður á morgun fyrir bátaumferð og veiði og vegurinn innan fjarðar verður sömuleiðis lokaður almennri umferð. Eftir sem áður verður opið fyrir umferð um brúna sjálfa, en ekki verður heimilt að stöðva ökutæki á brúnni.

Fylgst verður grannt með árangri aðgerðanna, magni síldar og súrefnisstöðu fjarðarins í því skyni að geta gripið til aðgerða á ný með skömmum fyrirvara þegar og ef þurfa þykir.

Frá Kolgrafafirði. Fjörðurinn hefur verið fullur af síld síðustu daga.
Frá Kolgrafafirði. Fjörðurinn hefur verið fullur af síld síðustu daga. Styrmir Kári
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert