Sérfræðingar EUMETSAT hingað til lands

Jörðin.
Jörðin. Ljósmynd/NASA

Um miðjan janúar varð Ísland fullgildur aðili að EUMETSAT, evrópsku veðurtunglastofnuninni. Með fullgildingunni opnast ný tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir; nú verður betri og greiðari aðgangur að gögnum veðurtunglastofnunarinnar.

Samningur þessa efnis var undirritaður í Reykjavík í ágúst síðastliðinn en beið fullgildingar. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands segir að því mikilvæga formsatriði sé lokið eftir aðeins hálfs árs bið.

„Veðurstofan stefnir að því að fá sérfræðinga EUMETSAT hingað til lands á árinu til að halda námskeið og kynningu á þeim afurðum sem standa til boða en miklir möguleikar felast í því að fá enn frekari gögn úr gervitunglum til náttúruvöktunar.

Einnig fá íslenskir aðilar nú gott tækifæri til að koma að þróunarverkefnum á þessu sviði og Ísland getur tekið fullan þátt í mótun og umræðum um stefnu og stjórn EUMETSAT.

Veðurstofan getur veitt aðgang að rauntímagögnunum hér á landi en eldri gögn eru aðgengileg í gegnum vefsíðu EUMETSAT. Veðurstofan getur veitt aðstoð við úrvinnslu slíkra gagna, t.a.m. með frjálsum hugbúnaði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert