Mældist fjórfalt meira en í Peking

Svifryksmengun í Reykjavík mældist hæst rúmlega fjórfalt meiri en hún mældist hæst í Peking miðvikudaginn 19. febrúar.

Heilbrigðisfulltrúi hjá Reykjavíkurborg bendir þó á að ólíku sé saman að jafna þar sem á Íslandi hafi þennan dag svifrykið verið mestu sandur en í Peking séu ýmis skaðleg efni í svifrykinu sem tengist iðnaði í borginni.

„Það er engan veginn raunhæft að bera Reykjavík saman við Peking þegar kemur að loftmengun. Þar eru reykspúandi verksmiðjur og allt aðrar aðstæður þegar að þessu kemur,“ segir Kristín Lóa Ólafsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Svifryksmengun er ólík eftir því hvort hún er náttúrulegs eðlis eða af mannavöldum. Því minni sem agnirnar eru því meiri er skaðsemin. Í stórum dráttum má segja að fínni svifryksagnir séu flestar af mannavöldum (frá bruna eldsneytis), en þær grófari frá náttúrulegum uppsprettum á borð við ösku úr eldgosum. Svifryksagnir eru ekki aðeins ólíkar hvað stærð varðar. Eiginleiki agnanna er breytilegur eftir uppruna þeirra. Könnun á samsetningu svifryks sýnir að að öllu jöfnu komi 25-35% svifryks í Reykjavík frá náttúrulegum uppsprettum. Svifryk af mannavöldum kemur frá allri starfsemi, en mest frá eldsneytisbruna, umferð og iðnaði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert