Rannsókn á hópnauðgun langt komin

Piltarnir sátu í gæsluvarðhaldi í viku.
Piltarnir sátu í gæsluvarðhaldi í viku. mbl.is/Brynjar Gauti

Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Reykja­vík­ur sem hafnaði kröfu ákæru­valds­ins um áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir fimm pilt­um sem all­ir eru grunaðir um að hafa nauðgað sex­tán ára stúlku aðfaranótt sunnu­dags­ins 4. maí sl.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, segir að þessi niðurstaða Hæstaréttar hafi ekki bein áhrif á rannsóknina þar sem óskað hafi verið eftir því að þeir sættu gæsluvarðhaldi áfram með hagsmuni almennings í huga, ekki rannsóknarhagsmuni. 

Rannsókn gengur vel og er langt komin, segir Friðrik Smári og segir hann rannsóknarhagsmuni ekki í hættu þó svo að piltarnir fimm gangi lausir. 

Pilt­arn­ir, sem eru á aldr­in­um 17–19 ára, sátu í gæslu­v­arðhaldi í viku en var sleppt 15. maí. 

Upp­haf­lega gæslu­v­arðhaldskraf­an byggði á því að rann­sókn­in væri skammt á veg kom­in og raun­veru­leg hætta væri á því að pilt­arn­ir hefðu áhrif á vitni eða aðra sak­born­inga í mál­inu, gengju þeir laus­ir. 

Pilt­arn­ir hafa all­ir geng­ist við því að hafa haft sam­far­ir við stúlk­una, en segj­ast hafa talið að hún væri því samþykk. Pilt­un­um ber þó ekki sam­an um at­b­urðinn og at­b­urðarás hon­um tengda, að því er fram kem­ur í úr­sk­urði Héraðsdóms um fyrri gæslu­v­arðhalds­kröfu.

Mynd­bands­upp­taka, sem tek­in var á síma eins pilt­anna fimm sem eru kærðir, styður framburð stúlk­unn­ar, að mati lög­reglu. Stúlk­an, sem er 16 ára, lagði sjálf mynd­bands­upp­tök­una fram þegar hún kærði hópnauðgun­ina, sem mun hafa átt sér stað aðfaranótt sunnu­dags­ins 4. maí.

Í grein­ar­gerð lög­reglu seg­ir jafn­framt að rök­studd­ur grun­ur sé um að fimm­menn­ing­arn­ir hafi þvingað stúlk­una til þess að þola það að þeir hefðu all­ir við hana sam­far­ir í svefn­her­bergi í íbúðinni. Ekki þykir vafi á því að þeir hafi verið „all­ir á sama tíma í svefn­her­berg­inu og hjálp­ast að við að færa stúlk­una úr föt­un­um á meðan þeir höfðu við hana sam­far­ir“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert