ISNIC skoðar hvaða úrræði séu fær

„Félagið hefur aldrei áður staðið frammi fyrir sambærilegri stöðu og ekki er með beinum hætti gert ráð fyrir henni í reglum ISNIC um lénaskráningu. Því ber félaginu að stíga varlega til jarðar og ígrunda vel þá kosti sem eru í stöðunni. Sú vinna fer nú fram.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Internet á Íslandi hf. (ISNIC) hefur sent til fjölmiðla í kjölfar fréttaflutnings af vefsíðu sem skráð er á íslenska lénið Khilafah.is en síðan tengist hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams. Fram kemur að félagið hafi tekið til skoðunar til hvaða ráðstafana megi grípa varðandi umrætt lén.

„Lénið virðist tengjast, eða vera á vegum, þekktra öfgasamtaka.“ Þá hvetur ISNIC fjölmiðla og aðra til að fjalla ekki með beinum hætti um lénið eða rita nafn þess þar sem slíkt sé aðeins til þess fallið að auka frekar á útbreiðslu þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert