Undanfarna daga hafa huðnurnar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum borið átta kiðlinga. Þeir eru rétt farnir að standa í fæturna en hingað til hafa 7 hafrar og 1 huðna bæst í dýrahópinn í garðinum.
mbl.is kíkti á kiðlingana í dag en við vörum viðkvæma við myndunum í myndskeiðinu því þær gætu sprengt alla krúttskala og gert allra hörðustu töffara meyra.