Maður handtekinn vegna innbrotsins

Mynd úr myndskeiði lögreglu.
Mynd úr myndskeiði lögreglu.

Lögreglan hefur handtekið mann í tengslum við innbrot verslunarmiðstöðinni Firði um síðustu helgi og hafa yfirheyrslur yfir honum farið fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þar var brotist inn í skartgripaverslun, en verðmæti þess sem stolið var hleypur á milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðilum. Maðurinn neitar sök en honum var sleppt í kjölfar yfirheyrslna og húsleitar.

Frétt mbl.is: Hringurinn að þrengjast

Rannsókn málsins hófst um leið og innbrotið uppgötvaðist að morgni sunnudagsins 2. ágúst. Í kjölfarið fundust föt sem talin eru hafa verið notuð af innbrotsaðila á tveimur stöðum í miðbæ Hafnarfjarðar en þar fundust einnig umbúðir utan af hluta þeirra skartgripa sem stolið var. 

Rannsókn málsins heldur áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert