Fjögurra bíla árekstur varð á Miklubraut um klukkan 22:30 í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fór betur en á horfðist.
Hann segir að einn til tveir hafi verið fluttir á slysadeild en þeir hafi ekki verið alvarlega slasaðir.
Atvikið átti sér stað við umferðarbrúna sem liggur yfir Reykjanesbraut.
Slökkviliðið var með töluverðan viðbúnað eftir að útkallið barst og voru sjúkra- og dælubílar sendir á vettvang. Dælubílnum var hins vegar snúið við þegar menn fengu betri upplýsingar um aðstæður á vettvangi. Aðgerðum lauk á skömmum tíma.
Tildrögin eru óljós.