Lögreglan á Akureyri handtók mann um tvöleytið í nótt sem lét reiði sína bitna á öllu sem fyrir honum varð og skemmdi meðal annars bifreið í bænum. Maðurinn gistir í fangaklefa og verður rætt við hann þegar af honum rennur víman, að sögn varðstjóra.
Einn var stöðvaður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna innanbæjar á Akureyri í gærkvöldi. Hann er ekki með bílpróf og hefur aldrei lokið slíku prófi.