Taskan datt úr strætó

Farþeginn er á leið erlendis með kvöldflugi og saknar því …
Farþeginn er á leið erlendis með kvöldflugi og saknar því töskunnar sárt. mbl.is/Golli

Farþegi Strætó varð fyrir því óláni að farangursrými opnaðist með þeim afleiðingum að svört ferðataska, meðalstór, í hans eigu týndist á milli Þorlákshafnar og Mjódd í Reykjavík.

Farþeginn er á leið til útlanda með kvöldflugi og saknar því töskunnar sárt.

Þeir sem hugsanlega hafa orðið varir við töskuna eru vinsamlegast beðnir um að láta vita á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi. 

Farþegi Strætó varð fyrir því óláni að farangursrými opnaðist með þeim afleiðingum að svört ferðataska (milli stór) í...

Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Friday, March 18, 2016
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert