83% meiri umferð um Mýrdalssand

Skálafell á Hafursey á Mýrdalssandi er meðal þess sem ber …
Skálafell á Hafursey á Mýrdalssandi er meðal þess sem ber fyrir augu ferðalanga á svæðinu. mbl.is/Jónas Erlendsson

Umferðin í mars á hringveginum jókst um ríflega 20% frá sama mánuði í fyrra. Aldrei hefur mælst jafn mikil aukning milli mánaða á hringveginum. Mismunandi tímasetning páska skýrir þetta ekki að öllu leyti og verður að telja líklegt að umferð erlendra ferðamanna skýri aukninguna að mestu. Umferðin um Mýrdalssand jókst t.d. um heil 83%.

Þetta kemur fram í samantekt Vegagerðarinnar.

Umferðin jókst gríðarlega á öllum landssvæðum í mars en mest um Austurland eða um tæp 54% og næst mest um Suðurland eða um tæp 33%. Minnst eykst umferðin við og um höfuðborgarsvæðið en þar mælist samt tæplega 13% aukning.

Ekki er óeðlilegt að umferð sveiflist mikið milli ára yfir vetrartímann en þessi sveifla er umfram það sem venjulega má eiga von á, þrátt fyrir mismunandi tíma páska milli ára. Í sögulegu samengi var mars á síðasta ári rétt yfir meðaltali áranna á undan, en nýliðinn mars reyndist 11% stærri en metmars-mánuðurinn árið 2008.

Áður fáséð aukning varð um teljara á Mýrdalssandi en þar jókst umferðin um tæp 83% milli mánaða. Umferð á þessum stað hefur verið að aukast gríðarmikið undanfarin ár, t.d. jókst umferðin þarna um 77% milli aprílmánaða 2013 og 2014.

Þegar þrír mánuðir eru liðnir af árinu 2016, hefur umferðin aukist um tæp 17%, frá áramótum.  Slík aukning hefur aldrei áður mælst miðað við árstíma. Mest hefur umferð aukist um Austurland en næst mest um Suðurland eða um tæp 24%. Minnst eykst umferðin um og við höfuðborgarsvæðið eða um rúmlega 13%.

Hugsanlegar skýringar á þessari miklu aukningu fram til þessa gætu verið  mikil aukning erlendra ferðamanna, aukinn kaupmáttur, ódýrt bensín og hugsanlega betri tíð það sem af er ári miðað við meðalár. Líklegast er aukningin blanda af þessu öllu eigi að síður hugsanlega að mestu leyti vegna hinnar auknu umferðar erlendra ferðamanna yfir vetrartímann, segir í frétt Vegagerðarinnar.

Aukningin mest á sunnudögum

Það sem af er ári hefur umferðin aukist mest á sunnudögum eða um tæp 27% en minnst á föstudögum eða um tæp 10%. Þó að aukningin sé minnst á föstudögum er mest ekið á þeim dögum. Minnst er ekið á þriðjudögum.

Enn er of snemmt að koma með raunhæfa spá vegna mikilla sveiflna í vetrarumferð á hringvegi milli ára. En aukningin er það mikil fyrstu þrjá mánuði ársins að það eru góðar líkur á talsverðri aukningu á umferð nú í ár þó að hún verði ekki í líkingu við það sem af er ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert