Baðst undan spurningum fyrir dómi

Geirmundur Kristinsson, fyrrum sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur, er ákærður fyrir umboðssvik.
Geirmundur Kristinsson, fyrrum sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur, er ákærður fyrir umboðssvik. mbl.is/Sverrir

Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, sagðist ekki myndu svara spurningum ákæruvaldsins um liði þeirrar ákæru sem hefur verið gefin út á hendur honum, við aðalmeðferð málsins sem fram fer í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Geir­mund­ur er ákærður fyr­ir umboðssvik með því að hafa mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum með lán­veit­ing­um til einka­hluta­fé­laga. Fjár­hæðirn­ar sem getið er í ákær­unni nema tæp­um átta hundruð millj­ón­um króna. Brot­in geta varðað allt að sex ára fang­elsi.

Ásakanirnar tekið verulega á Geirmund

Áður en skýrslutaka hófst fyrir dómi í dag var Geirmundur spurður hvort hann vildi tjá sig að einhverju leyti um þær sakir sem á hann eru bornar.

„Ég fól undirmanni mínum að framkvæma þau mál sem hér er getið, sem og hann gerði. Ég kom því ekkert nánar að þessu enda var það ekki í mínum verkahring,“ sagði Geirmundur. Bætti hann við að tekið hefði verulega á hann að sitja undir þessum ásökunum í fleiri ár, enda teldi hann að ferlið hefði tekið úr hófi langan tíma.

Að yfirlýsingunni lokinni sagðist hann biðjast undan frekari spurningum varðandi liði ákærunnar, þar sem hann væri áður búinn að svara spurningum lögreglu. Lauk skýrslutöku yfir honum þar með. Eins og mbl.is hefur áður greint frá, neitar Geirmundur sök í málinu.

Sparisjóðurinn í Keflavík opnaði útibú í Borgartúni í Reykjavík árið …
Sparisjóðurinn í Keflavík opnaði útibú í Borgartúni í Reykjavík árið 2008, nokkrum mánuðum fyrir hrun bankakerfisins. mbl.is/Friðrik Tryggvason

Stefnt fé sjóðsins í verulega hættu

Í ákæru seg­ir að Geir­mund­ur, sem lét af störfum á miðju ári 2009, og er nú 72 ára, hafi stefnt fé spari­sjóðsins í veru­lega hættu þegar hann fór út fyr­ir heim­ild­ir til lán­veit­inga, með því að veita einka­hluta­fé­lag­inu Duggi 100 millj­óna króna yf­ir­drátt­ar­lán þann 16. júní 2008.

Afstaða lána­nefnd­ar hafi ekki legið fyr­ir á þeim tíma og þá hafi áhættu- og greiðslu­mat ekki farið fram, auk þess sem end­ur­greiðslan hafi ekki verið tryggð með nokkr­um hætti.

Icebank gekk að allri innistæðunni

Tveim­ur dög­um síðar, eða þann 18. júní 2008, mun fjár­hæðinni hafa verið ráðstafað inn á reikn­ing Duggs. Sama dag tók Icebank, síðar Sparisjóðabanki Íslands (SPB), hand­veð í þess­um reikn­ingi fyr­ir skuld­bind­ing­um annars tengds einkahlutafélags, Suður­nesja­manna, gagn­vart bankanum.

Í sept­em­ber sama ár var síðan gengið að allri inni­stæðunni til greiðslu á skuld Suður­nesja­manna við Icebank.

Icebank hafði áður lánað Suður­nesja­mönn­um mikl­ar fjár­hæðir til kaupa á hlut í HS Orku, en Suður­nesja­menn voru í 47% eigu Gríms Sæ­mundsen, for­stjóra Bláa lóns­ins, og var hann jafn­framt fram­kvæmda­stjóri fé­lags­ins.

Lands­bank­inn hf. af­skrifaði síðan kröf­una í júlí 2015 vegna gjaldþrots Duggs ehf. Ekk­ert fékkst upp í kröf­ur í kjöl­far gjaldþrots­ins. Suður­nesja­menn urðu gjaldþrota árið 2009.

Sparisjóðurinn sameinaðist Landsbankanum árið 2011.
Sparisjóðurinn sameinaðist Landsbankanum árið 2011. mbl.is/Víkurfréttir

Framseldi 700 milljóna bréf til sonar síns

Þá varðar málið einnig umboðssvik þar sem Geir­mund­ur er tal­inn hafa mis­notað aðstöðu sína, sem stjórn­ar­formaður dótt­ur­fé­lags spari­sjóðsins, einka­hluta­fé­lags­ins Víkna, og valdið fé­lag­inu veru­legri fjár­tjóns­hættu, þegar hann fram­seldi stofn­bréf í Spari­sjóði Kefla­vík­ur að verðmæti tæp­lega 700 millj­ón króna, frá Vík­um til einka­hluta­fé­lags­ins Foss­vogs­hyls í lok árs 2007 án þess að nokkuð end­ur­gjald kæmi fyr­ir.

Eng­inn lána­samn­ing­ur var gerður og ekki var gengið frá neinni trygg­ingu. Sama dag og stofn­fjár­bréf­in voru skráð á Foss­vogs­hyl var fé­lagið fram­selt frá Deloitte til son­ar Geir­mund­ar, Sverr­is Geir­munds­son­ar.

Skuld­in var skráð hjá dótt­ur­fé­lagi spari­sjóðsins og var hún af­skrifuð árið 2010.

Svört mynd dreg­in upp af rekstr­in­um

Spari­sjóður­inn var yf­ir­tek­inn af rík­inu árið 2010 og sam­einaðist Lands­bank­an­um árið 2011. Þurfti ríkið að greiða bank­an­um 19,2 millj­arða vegna sam­ein­ing­ar­inn­ar.

Eft­ir fall sjóðsins fékk Fjár­mála­eft­ir­litið end­ur­skoðun­ar­fyr­ir­tækið PriceWater­hou­seCoo­pers til að gera út­tekt á starf­semi sjóðsins. Skýrsl­an var sögð draga upp svarta mynd af rekstri hans og að meðal ann­ars hafi háar fjár­hæðir verið lánaðar starfs­mönn­um, stjórn­end­um og fé­lög­um þeim tengd­um án trygg­inga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert