Hélt þjófnum föstum

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Árvökull íbúi í Kópavogi tilkynnti til lögreglu um mann sem væri á gangi um hverfið, takandi í hurðarhúna húsa og bifreiða um þrjú í nótt. Þegar maðurinn var kominn inn í bifreið nágranna stökk íbúinn út og hélt manninum föstum þangað til lögregla kom á vettvang.

Á manninum, sem er á fertugsaldri, fundust ýmsir munir sem hann viðurkenndi að hafa stolið úr öðrum bifreiðum. Maðurinn er vistaður í fangageymslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert