Það var nóg að gera hjá íslensku lögreglunni í nótt en hún tísti verkefnum næturinnar undir myllumerkinu #löggutíst. mbl.is tók saman nokkur dæmi um tíst næturinnar.
Nú rigna inn tilkynningar um feitlaginn karl í rauðum galla og með sítt skegg að kíkja á glugga. Allir úti að leita #löggutíst #jólasveinn
— Police Sudurnes (@sudurnespolice) December 17, 2016
Lögreglumenn sinntu eftirliti með ölvunar- og vímuefna akstri í kvöld, 200 ökumenn stöðvaðir, enginn undir áhrifum. #gottmál #löggutíst pic.twitter.com/ylFsFMbyuS
— LRH (@logreglan) December 17, 2016
Ókum fram á útlendinga sem voru búnir að bíða í 3klst eftir að sjá Norðurljós. Gátum ekki fundið þau fyrir þau. #skýjað #löggutíst
— LögreglanNorðEystra (@LogreglanNE) December 17, 2016
Unglingur festir hendi í stubbahúsi í veikri von um að næla sér í sígarettu. Búið að losa viðk. úr prísundinni. #löggutíst #reykingardrepa
— LRH (@logreglan) December 16, 2016
Kvartað undan áköfum predikerara sem biðlar til skemmtanaglaðra miðborgargesta sem eru minna en móttækilegir fyrir boðskapnum. #löggutíst
— LRH (@logreglan) December 17, 2016
Tilkynnt um unglingspilta að búa til Molastöðum-kokteila í undirgöngum við leikskóla. #löggutíst
— LRH (@logreglan) December 17, 2016
Borðað á milli verkefna, tvöfaldur bacon og ostborgari á línuna #löggutíst #maðurverðuraðborða
— Police Sudurnes (@sudurnespolice) December 16, 2016
Forgangur 1 hjá okkur vegna 3 ára barns sem fékk yfir sig heitan vökva, mikill bruni á fótum. Sjúkralið á leið á vettvang líka #löggutíst
— Police Sudurnes (@sudurnespolice) December 16, 2016
Lögregla kölluð til vegna nágranna sem eru að deila #löggutíst
— Police Sudurnes (@sudurnespolice) December 16, 2016
Maður óskar eftir aðstoð lögreglu vegna vinar sem er æstur og til vandræða - ekki í fyrsta skipti. #löggutíst
— LRH (@logreglan) December 16, 2016
Lögreglan á Dalvík kíktu í vinhúsaeftirlit á kaffihús #GíslaEiríksogHelga á Dalvík. #AlltÍToppstandi og menn hressir eins og sést #Löggutíst pic.twitter.com/bLPaKzTfRw
— LögreglanNorðEystra (@LogreglanNE) December 17, 2016
Heimilisofbeldi í efri byggðum borgarinnar, einn handekinn vegna málsins #Löggutíst
— LRH (@logreglan) December 17, 2016
Það þarf líka að nærast þótt mikið sé um að vera. #löggutíst pic.twitter.com/PloTDGDLpk
— LRH (@logreglan) December 17, 2016
Nú er það partýhávaði í Grindavík sem við þuefum að sussa á #löggutíst #fólkgeturekkisofið
— Police Sudurnes (@sudurnespolice) December 17, 2016
Jæja. Þá er þessu lokið. Okkur langar að þakka fyrir samfylgdina í nótt.Takk fyrir okkur. #NorðurlandOut #löggutíst pic.twitter.com/JEnH2KYL2B
— LögreglanNorðEystra (@LogreglanNE) December 17, 2016