250 til 300 íbúðir á næstu árum

Nýtt deiliskipulag við Stakkahlíð.
Nýtt deiliskipulag við Stakkahlíð. Teikning/A2F arkitektar ehf

Byggingafélag námsmanna mun á næstu árum byggja 250 til 300 íbúðir fyrir félagsmenn sína. Viljayfirlýsing þess efnis hefur verið undirrituð af Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra í Reykjavík, Salome Guðmundsdóttur, stjórnarformanni félagsins og Böðvari Jónssyni, framkvæmdastjóra þess.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er horft til fjögurra svæða, til að ná umræddum fjölda íbúða.

Reykjavíkurborg veiti í fyrsta lagi vilyrði fyrir tveimur byggingarlóðum á svokölluðum KHÍ-reit við Stakkahlíð, fyrir um 100 nemendaíbúðir, í samræmi við deiliskipulag.

Borgin muni þá láta kanna hvort mögulegt sé að nýta betur og fjölga íbúðum á lóðum Byggingarfélags námsmanna við Klausturstíg 1-11, Kapellustíg 1-13 og Kristnibraut 91-93.

Vilyrði sé auk þess veitt fyrir úthlutun lóðar fyrir 50 - 100 námsmannaíbúðir í Bryggjuhverfi 3, þegar deiliskipulag liggur fyrir.

Þá lýsa Reykjavíkurborg og Byggingafélag námsmanna yfir vilja til að efna til viðræðna við ríkissjóð, um að fá afnot hluta af lóð Sjómannaskólans við Háteigsveg 35-39, og að endurskoða fyrirliggjandi deiliskipulag á lóð félagsins að Háteigsvegi 31-33, til að reisa þar um 50 námsmannaíbúðir.

Kauprétt að allt að 5% íbúða

Viljayfirlýsingin, sem undirrituð var í dag, er sögð í samræmi við markmið húsnæðisstefnu um fjölbreyttar húsa­gerðir, blöndun íbúðagerða innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða fyrir alla félagshópa.

Í leigusamningi um lóðirnar verði að lokum kvöð þess efnis að á lóðunum skuli byggðar eða reknar leiguíbúðir fyrir námsmenn, og að eignarhald þeirra skuli ávallt vera óbreytt, nema að fengnu samþykki Reykjavíkurborgar.  Þá munu Félagsbústaðir hafa kauprétt að allt að 5% íbúða sem byggðar verða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert