Vel hægt að vakta miðborgina

Birna Brjánsdóttir sést hér í eftirlitsmyndavél á ferð í Austurstræti.
Birna Brjánsdóttir sést hér í eftirlitsmyndavél á ferð í Austurstræti. Skjáskot/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Allar forsendur eru fyrir því að vakta Laugaveginn með eftirlitsmyndavélum þannig að hægt sé að sjá á greinilegri hátt umferð gangandi vegfarenda og bíla.

Þetta segir Ómar Örn Jónsson, markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar, aðspurður. Síðast sást til Birnu Brjánsdóttur á eftirlitsmyndavél á Laugaveginum. Nokkurn tíma hefur tekið fyrir lögregluna að greina ferðir hennar, meðal annars með aðstoð myndavéla.  

Þessi ljósmynd sýnir muninn á nýjum eftirlitsmyndavélum og þeim sem …
Þessi ljósmynd sýnir muninn á nýjum eftirlitsmyndavélum og þeim sem eldri eru. Ljósmynd/Aðsend

Hann nefnir að tækninni hafi fleygt mjög fram á síðustu árum og hægt sé að fá öflugri vélar en þær sem eru núna notaðar víða í miðborginni, þó svo að þær séu ekki gamlar.

„Ef menn vilja vakta þannig að hægt sé að greina fólk og númeraplötur þá býður tæknin upp á það allt saman. Menn þurfa bara að átta sig á hvað þeir vilja gera,“ segir Ómar Örn og bætir við að búnaðurinn sé orðinn mun ódýrari en áður.

Myndin til hægri er tekin af Birnu Brjánsdóttur úr eftirlitsmyndavél …
Myndin til hægri er tekin af Birnu Brjánsdóttur úr eftirlitsmyndavél við Laugaveg um kl. 5.25 að morgni síðasta laugardags.

Sjá auðveldlega í myrkri

Hann segir að nýjustu vélarnar geti tekið mjög auðveldlega upp í myrkri. Þar er notast við svokallaða „Starlight“-tækni með innrauðu ljósi sem sér mun betur en mannsaugað.

Eftir að leitin að Birnu hófst segir Ómar að strax á eftir hafi Öryggismiðstöðin fengið mikil viðbrögð frá almenningi og fyrirtækjum. „Okkar viðskiptavinir hafa verið að skipta út vélum og eins setja ný kerfi upp,“ segir hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert