Bilun í sæstreng til Vestmannaeyja

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Sigurður Bogi

Bilun kom upp í Vestmannaeyjastreng 3 í gær. Hann er að stærstum hluta sæstrengur og er annar af tveimur sem flytja rafmagn til Vestmannaeyja.

Kemur þetta fram í tilkyningu frá Landsneti. Þar segir enn fremur að strax í gærkvöldi hafi bilanaleit hafist og þurfti tímabundið að rjúfa allan rafmagnsflutning til Eyja vegna þess. Vararafstöðvar HS veitna sáu Vestmannaeyjum fyrir rafmagni á meðan. 

Fyrstu mælingar benda til að staðsetning bilunar sé í sjó, um miðja vegu milli lands og Eyja. Í dag verður unnið við að staðfesta bilanastað en aðgerðaráætlun fyrir viðgerð er komin af stað.

Vestmannaeyjastrengur 1 sér nú einn um að flytja rafmagn til Eyja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert