„Ekki tekið neina ákvörðun“

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafnsson. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um slíkt,“ segir Björn Ingi Hrafnsson aðspurður hvort hann stefni á framboð í Reykjavíkurborg í næstu sveitarstjórnarkosningum sem eru eftir tæpt ár. 

Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson greinir frá því á vefsíðu sinni að „í farvatninu sé mögulegt nýtt þverpólitískt framboð í borgarpólitíkinni“ og að Björn Ingi muni leiða það. 

Björn Ingi vildi ekki gefa neitt upp þegar mbl.is óskaði eftir frekari viðbrögðum við þessu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert