Enginn var með allar tölur réttar þegar dregið var í lottói kvöldsins. Hins vegar var einn heppinn með annan vinning, fjórar tölur réttar af fimm, og hlaut hann rúmar 336 þúsund krónur í sinn hlut. Sá miði var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni.
Tveir voru með annan vinning í Jóker og fengu hvor um sig 100 þúsund krónur. Þeir miðar voru keyptir í N1 á Gangvegi í Reykjavík og hinn í Shellskálanum Þorlákshöfn.