Ungir Píratar krefjast þess að Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra og Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra komi í veg fyrir lokun Hugarafls.
„Við hörmum vanrækslu yfirvalda á þessum mikilvæga málaflokki og nú virðist botninum hafa verið náð. Við gerum þá kröfu að þeim hundruðum sem þurfa á starfi Hugarafls að halda sé sýnd sómasamleg virðing og að þessi hópur fái nauðsynlegan stuðning,“ segir í tilkynningu frá Hugarafli.
Hugarafl eru samtök notenda geðheilbrigðisþjónustunnar og stærstu samtök utan stofnana sem vinna að þessum málaflokki. Í samtökunum vinnur félagsfólk og starfsfólk á jafningjagrundvelli við að hafa áhrif á geðheilbrigðisþjónustu og bjóða upp á aðstoð sem byggir á mannlegum gildum, valdeflingu og bataferli.
Áætlað er að 1,5 milljónir króna renni til Hugarafls á þessu ári samanborið við 8 milljónir árið áður, að því er segir í tilkynningunni.
„Formaður Hugarafls hefur ítrekað sagt í fjölmiðlum að samtökin glími við mikinn fjárskort og þurfi að öllu óbreyttu að segja upp sínu starfsfólki næstu mánaðarmót. Við lokun Hugarafls munu margir missa ómetanlegan griðastað sem ekki á sér hliðstæðu innan geðheilbrigðiskerfisins á Íslandi. Starfsemin er mikilvæg, þar sem fólk með geðraskanir mætir fordómaleysi hjá Hugarafli og fær hjálp í annars kostnaðarsömu og takmörkuðu geðheilbrigðiskerfi. Þetta mikilvæga starf þarf að lifa.“