Bryndís gefur ekki kost á sér í Mosfellsbæ

Bryndís Haraldsdóttir.
Bryndís Haraldsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bryndís Haraldsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar sem fram fara í vor. Bryndís var kosin á Alþingi síðastliðið haust og hefur setið á þingi og í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðis­flokkinn í Mosfellsbæ.

Þetta kemur fram í Mosfellingi en þar segir Bryndís að hún ætli að ljúka yfirstandandi kjörtímabili í sveitarstjórn. Hún er að ljúka öðru kjörtímabili sínu sem bæjarfulltrúi en áður var hún varabæjarfulltrúi.

„Ég vona að vinna mín hafi skilað einhverju og mun halda áfram að vinna fyrir samfélagið og bæinn minn þótt það verði ekki innan bæjarstjórnar á næsta kjörtímabili,“ segir Bryndís meðal annars í samtali við Mosfelling.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert