6 af hverjum 10 vilja rífa sementsstrompinn

Sementsverksmiðjan á Akranesi. Um 60% þeirra sem taka þátt í …
Sementsverksmiðjan á Akranesi. Um 60% þeirra sem taka þátt í könnun Skagafrétta vilja strompinn burt. mbl.is/Kristinn Magnússon

Um 60% þeirra sem tekið hafa þátt í könnun fréttavefjarins skagafrettir.is vilja láta rífa stromp Sementsverkmiðju ríkisins á Akranesi.

Greint var frá því í fyrra að Sements­verk­smiðjan hefði lokið hlut­verki sínu og hin miklu mann­virki þeirra, alls um 140 þúsund rúmmetrar sem reist voru á árunum 1956-58, verði rif­in á næstu miss­er­um.

Rúmlega 1.600 manns hafa tekið þátt í könnun, sem enn er í gangi, og eins og staðan er nú þá eru um 60% á þeirri skoðun að strompurinn eigi að fara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert