26 umsækjendur sóttu um um tvær stöður saksóknara við embætti ríkissaksóknara, en umsóknarfresturinn rann út 2. október síðastliðinn.
Í frétt á vef stjórnarráðsins kemur fram að miðað sé við að dómsmálaráðherra skipi í embættin frá og með 1. janúar 2018.
Saksóknarar hjá embætti ríkissaksóknara eru skipaðir til fimm ára og skulu þeir fullnægja sömu lagaskilyrðum og héraðsdómari til skipunar í embætti.
Umsækjendur um stöðurnar tvær eru:
- Anna Barbara Andradóttir
- Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir
- Ásgeir Jónsson
- Berglind Helgadóttir
- Birgir Jónasson
- Bjarni Lárusson
- Dagmar Vésteinsdóttir
- Dröfn Kærnested
- Fanney Björk Frostadóttir
- Guðlaug Jónasdóttir
- Guðrún Sveinsdóttir
- Gunnhildur Pétursdóttir
- Harpa Sólveig Björnsdóttir
- Hildur Sunna Pálmadóttir
- Hrafnhildur Gunnarsdóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Hilmarsdóttir
- Katrín Ólöf Einarsdóttir
- Kári Guðmundsson
- Kjartan Ólafsson
- Ólafur Freyr Frímannsson
- Óli Ingi Ólason
- Sigrún Inga Guðnadóttir
- Valborg Steingrímsdóttir
- Vilhjálmur Reyr Þórhallsson
- Þorbjörg Gunnlaugsdóttir