Hinn árlegi Kjötsúpudagur er haldinn á Skólavörðustígnum í dag. Líkt og fyrri ár var lítra eftir lítra af gómsætri kjötsúpu útdeilt til gesta og gangandi.
Þar sem Kjötsúpudagurinn þetta árið er aðeins viku fyrir kosningar var einnig efnt til Frambjóðendafjörs, sem var í formi laufléttra kappræðna um íslenska búvöru undir stjórn fjölmiðlamannsins Helga Seljan.
Frambjóðendafjörið fór fram á heyvagni sem var komið fyrir aftan í dráttarvél við Hegningarhúsið og var ekki annað að sjá en að frambjóðendurnir kynnu vel við sig uppi á vagninum.