Fyrr í kvöld barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um eldglæringar í rafmagnskassa við Lambastekk í Breiðholti. Ekki var um mikinn eld að ræða en eftir að hann hafði verið slökktur tók Orkuveita Reykjavíkur við á vettvangi.
Aftengja þurfti rafmagnskassann meðan á viðgerð stendur og því má búast við einhverjum truflunum á rafmagni á svæðinu.