Samþykkt var á fjölmennum félagsfundi Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, í kvöld að leiðtogaprófkjör fari fram laugardaginn 27. janúar á næsta ári vegna borgarstjórnarkosninganna á næsta ári.
Fram kemur í fréttatilkynningu að stjórn Varðar hafi borið þessa tillögu upp fyrir fundinn í kvöld í samræmi við 24. grein prófkjörsreglna Sjálfstæðisflokksins og að mikill einhugur hafi verið um hana.