Létt yfir formönnum á fyrsta degi

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og …
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, hittust í morgun. mbl.is/Eggert

Formenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna hófu stjórnarmyndunarviðræður með formlegum hætti í morgun. Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Katrín Jakobsdóttir, ásamt fylgdarfólki, hittust klukkan hálftíu í húsakynnum Alþingis. Létt var yfir formönnunum.

Óformlegar viðræður hafa staðið yfir síðustu daga en þingflokkarnir samþykktu í gær að hefja formlegar viðræður. Tveir þingmenn Vinstri grænna, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson, greiddu atkvæði gegn því að fara í viðræður við þessa flokka.

Forseti Íslands hefur sagt að hann búist við að fyrir lok vikunnar komi í ljós hvort flokkunum tekst að mynda ríkisstjórn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert