Árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar nú á þriðja tímanum, þegar pallbíll og lítill strætisvagn skullu saman. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu lítur ekki út fyrir að alvarleg slys hafi orðið á fólki, en ekki lágu fyrir upplýsingar um hversu margir hefðu slasast.
Lögregla og slökkvilið eru nú að störfum á slysstað og má búast má við töfum á umferð á næstunni.