Maðurinn sem lést af sárum sínum eftir að hafa verið stunginn með hnífi á Austurvelli aðfaranótt sunnudags hét Klevis Sula. Klevis var tvítugur og albanskur að uppruna. Hann hefur dvalið hér á landi um langa hríð.
Þetta staðfestir lögregla við mbl.is. Karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi grunaður um verknaðinn en gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manninum rennur út 15. desember.
Hinn maðurinn, sem var stunginn með hnífi á sama stað og sömuleiðis fluttur í sárum á bráðamóttökuna, hefur verið útskrifaður af Landspítalanum og yfirheyrður af lögreglu.